Hvað á
að flokka?
Allar umbúðir úr stífu plasti svo sem plastdósir, -bikara og brúsa. Mjúkt plast eins og plastfilmu, bóluplast og plastpoka. Frauðplast t.d. utan af raftækjum og undan ýmsum matvælum.
Hvað þarf að fjarlægja áður en plasti er skilað?
Þrifa skal allar matarleifar úr plastumbúðum. Fjarlægja þarf allan pappa sem kann að fylgja samsettum umbúðum.
Hvar á að losa?
Heimili:
Gámar fyrir flokkað plast verða á gámasvæðinu við Réttahvamm 2 á Akureyri. Upplýsingar um hvert hver flokkur á að fara er að fá hjá starfsfólki gámasvæðisins.
Einnig er tekið á móti þessum úrgangsflokki hjá Sagaplasti ehf./Endurvinnslunni hf. Réttarhvammi 3, Akureyri.
Rekstraraðilar:
Sagaplast ehf. Réttarhvammi 3, Akureyri tekur á móti plasti frá rekstraraðilum.
Enduvinnslutunnan og Græna tunnan
Plastumbúðir mega einnig fara í "endurvinnslutunnuna" frá Gámaþjónustunni hf. eða í "grænu tunnuna"frá Íslenska Gámafélaginu ehf.










