Flýtilyklar
Fréttir
Molta notuð í uppgræðslu
miðvikudagur 11.ágúst 2010
Nú hefur jarðgerðarstöðin Molta ehf. hafið tilraun með að nýta moltu, sem er afurð af þeirra framleiðslu, til uppgræðslu.
Svæðið sem á að græða upp er afgirt malarsvæði rétt við lóð jarðgerðarstöðvarinnar. Hægt er að lesa
nánar um þetta á heimasíðu Moltu www.molta.is
Enn dregur úr magni úrgangs
föstudagur 16.júlí 2010
Úrgangsmagn það sem
af er árinu 2010 hefur minnkað nokkuð miðað við árið á undan.
Heildar magn úrgangs, sem borist hefur á urðunarstað Flokkunar og til jarðgerðar-stöðvar Moltu, fyrstu 6 mánuðu ársins, er 8.850 tonn. Í urðun hafa farið 4.480 tonn, til jarðgerðar 3.600 tonn. Annar úrgangur s.s. múrbrot/gler/sandur er 770 tonn. Hlutfall urðunar er því rétt um 50% en það hlutfall var svipað árið 2009. Þetta hlutfall hefur lækkað verulega á síðustu árum eða úr tæpum 80% árið 2007.
Magnspá Flokkunar gerir ráð fyrir að alls verði urðuð 9,250 tonn á Glerárdal árið 2010.










