
Gjaldskyld ökurtæki
Greitt er 15.000 kr. skilagjald fyrir gjaldskyld ökutæki sem eru afskráð og afhent á móttökustöð til endurnýtingar eða endanlegrar förgunar, enda hafi ökutækið verið afskráð og úrvinnslugjald greitt a.m.k. einu sinni af viðkomandi ökutæki. Ökutæki sem eru skráð fyrir 1980 falla ekki undir kerfið enda hefur aldrei verið greitt af þeim úrvinnslugjald. Á Akureyri tekur Aðstoð sf., Frostagötu 2c við ökutækjum til endurvinnslu og gefur út “skilavottorð”. Einnig er móttaka í áhaldahúsunum á Ólafsfirði og á Dalvík.
Úrvinnslugjald á ökutæki er innheimt með bifreiðagjöldum í 15 ár. Ekki er innheimt úrvinnslugjald af ökutækjum sem eru 25 ára eða eldri. Nánari upplýsingar eru á vef Úrvinnslusjóðs og í síma 517 4700.

Áætlað er að árlega falli til um 300 úrsérgengar bifreiðar á Eyjafjarðarsvæðinu. Undanfarin ár hafa verið flutt út um 3.000 tonn á ári af brotajárni af Eyjafjarðarsvæðinu og er töluverður hluti þess bifreiðar.
Ökutæki og aðra brotamálma er bannað að urða. Allir brotamálamar eru fluttir erlendis til endurvinnslu. Á Eyjafjarðarsvæðinu sér Hringrás ehf. um útfluttning og meðhöndlun brotajárns fyrir útfluttningnn.
Til baka









