
Hvað á að flokka?
Garðaúrgang skal flokka í tvo flokka, annarsvegar sem gras og hinsvegar sem runna- og trjáafklippur.
Hvar á að losa?
Garðaúrgang skal losa í gáma merkta grasi annarsvegar og runna- og trjáafklippur hinsvegar þar sem þeir eru til staðar. Æskilegt er að halda grasi og trjá- og runnafklippum aðskildu. Auðvelt er að geyma trjá- og runnafklippur og nota sem stoðefni í jarðgerð að vetrarlagi. Þar sem aðeins eru gámar merktir "garðaúrgangur" er þó leyfilegt að setja þessa flokka saman í gám. Viða á Eyjafjarðarsvæðinu er að finna gáma/gámasvæði fyrir þennan úrgangsflokk. Lista yfir þá staði má finna hér.










