Úrgangur til Flokkunar 2010
Heildarúrgangur samkvæmt magnbókhaldi Flokkunar fyrir árið 2010 minnkaði nokkuð miðað við árið á undan eða í kringum um 7 %. Erfitt er að segja til um hvort það sé enn samdráttur í neyslu í þjóðfélaginu sem skýrir þessa minnkun á úrgangsmagni eða hvort sú aukning sem orðið hefur í flokkun og endurvinnslu hafi haft þessi áhrif. Vissulega má samt gera ráð fyrir að sú aukna og markvissa flokkun og söfnun á enduvinnsluefnum, sem allflest sveitarfélögin á svæðinu hafa tekið upp að einhverju leiti, hafi haft mestu áhrifin.
Magn þess úrgangs sem fór til urðunar á Glerárdal árið 2010 var um 9.638 tonn, til jarðgerðar fóru um 6.146 tonn og í annað, sem er mest svokallaður óvirkur úrgangur (múrbrot og gler) og gras, fóru um 3.222 tonn. Skýringin á að hér er það magn sem ráðstafað er til jarðgerðar hærra en það magn sem meðhöndlað var í Moltu árið 2010 er sú að þegar var búið að móttaka tað, timbur og gróður til Flokkunar árið 2010 sem bíður meðhöndlunar í jarðgerðarstöðinni á þessu ári.










