Vistvæn innkaup, hvað er það?

Hvað úrgangsmál snertir eru vistvæn innkaup mikilvægur þáttur. T.d. endar mikið magn matvæla í ruslinu ár hvert og þannig
er sóað fjármagni bæði neytandans og samfélagisins í heild. Hægt er að rekja hluta þess magns sem er sóað til rangra innkaupa og
þannig hafa vistvæn innkaup bein áhrif á úrgangsstjórnun.
Við vistvæn innkaup er mikilvægt að greina raunverulega þörf og þannig einblína ekki á ákveðna vöru heldur virkni hennar þ.e. hvaða þörf á varan að uppfylla. Kannski er hægt að uppylla þörfina með breyttu vinnulagi, endurnýtingu, þjónustu eða öðrum valkostum. Í þessu sambandi snúast vistvæn innkaup ekki alltaf um að kaupa vistvænni vöru heldur geta þau snúist um að kaupa minna eða fara aðrar leiðir.
Á síðunni http://www.vinn.is/ eru m.a. hagnýtar upplýsingar um hvernig standa má að því að innleiða
vistvæn innkaup í starfsemi opinberra aðila, ásamt ýmsu fræðslu efni þessu tengdu.










