Flokkun Eyjafjörður ehf

Úrgangsstýring

Raf- og rafeindatækjaúrgangur

Hvað á að flokka ?

Sérstakir gámar eru á gámasvæðunum á Akureyri og Dalvík til losunar á öllum raf- og rafeindatækjaúrgangi öðrum en kælitækjum og þvottavélum.  Þetta eru lokaðir gámar með körum fyrir einstaka úrgangsflokka svo sem sjónvörp, hljómtæki, tölvur og tölvuskjái ásamt ýmsum rafmagns heimilstækjum, verkfærum, flúrperum, sparperum og venjulegum ljósaperum og jafnvel rafmagnsleikföngum.  Sérstakir opnir gámar eru eins og áður fyrir kælitæki og þvottavélar.

Hvernig skal flokka ?

Þvottavélar og kælitæki eiga að fara í sérstaka gáma. Öll önnur raf- og rafeinda-tæki eiga að fara í sérstakan gám fyrir raf- og rafeindatækja úrgang.  Í gámnum eru kör fyrir mismunandi flokka og eru leiðbeiningar og merkingar í gámnum. Starfsmenn gámasvæðanna veita upplýsingar og aðstoð ef með þarf.

 

 

Auglýsingar

Flokkun Úrgangs
Lög og reglur
Áhugaverðir tenglar
Molta
Fenur
Endurvinnslukortid

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning