
Hvað á að flokka?
Mikið til fellur af ýmsum málmum á heimilum, má þar nefna niðursuðudósir, krukkulok, álpappír, herðatré úr vír, ýmis konar álumbúðir t.d. undan sprittkertum ofl. Húsgögn eru einnig oft að hluta til eða alveg úr málmi.
Málmar eiga ekki að fara með óflokkuðum úrgangi þar sem um er að ræða verðmætt
hráefni.
Hvernig skal flokka?
Allir smærri málmhlutir skulu flokkaðir sér og settir í sérstaka gáma merkta málmum á
gámasvæðum.
Stærri hlutar úr málmum s.s. girðingar, vélar, og ónýt ökutæki skulu flokkaðir sér.
Hvar á að losa?
Á Eyjafjarðarsvæðinu er nokkuð víða gámar til losunar á smærri málmhlutum. Lista yfir gáma/gámasvæði á Eyjafjarðarsvæðinu má finna hér.
Stærri hlutir úr málmum s.s. girðingar, vélar og ónýt ökutæki, sem ekki bera skilagjald, skal fara með til losunar í brotamálmsmóttöku Hringrásar ehf., Ægisnesi 1 á Akureyri.
Enduvinnslutunnan og Græna tunnan
Litlir málmhlutir mega einnig fara "endurvinnslutunnuna" frá
Gámaþjónustunni hf. eða "grænu tunnuna"frá Íslenska Gámafélaginu ehf.










