Flokkun Eyjafjörður ehf

Úrgangsstýring

Kertaafgangar

Hvað á að flokka?

Nokkuð fellur til af ýmsum kertaafgöngum, allskyns kertastubbum og ónothæfum kertum á hverju heimili. Þessir kertaafgangar þurfa ekki að enda í ruslinu heldur skal safna þeim saman og skila til endurvinnslu.

Hvert skal skila?

Kertaafgöngum er hægt að skila í sérstaklega merktar tunnur sem staðsettar eru á gámasvæðunum á Akureyri og í Dalvíkurbyggð. Einnig er tekið við þeim hjá Sagaplast ehf., Réttarhvammi 3 á Akureyri og hjá Plastiðjunni Bjarg-Iðjulundur, Furuvöllum 1 á Akureyri. 

Í hvað eru kertaafgangar notaðir?

Allir kertaafgangar eru bræddir og notaðir í útikerti sem framleidd eru hjá Plastiðjunni Bjargi-Iðjulundi. Hægt er að nýta allar tegundir af kertum, jafnt hefðbundin kerti sem ilmkerti.

Auglýsingar

Flokkun Úrgangs
Lög og reglur
Áhugaverðir tenglar
Molta
Fenur
Endurvinnslukortid

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning