Flokkun Eyjafjörður ehf

Úrgangsstýring

Kæli- og frystitæki

 

Hvað á að flokka? 

Kæli- og frystitæki innihalda kælivökva sem flokkast sem spilliefni, þennan vökva þarf að fjarlægja úr tækjunum áður en þau fara til endurvinnslu. Í eldri gerðum af kælitækjum er freon notað sem kælivökvi. Mjög mikilvægt er að freon komist ekki út í andrúmsloftið, þar sem það hefur mjög skaðleg áhrif á ósonlagið en ósonlagið ver okkur jarðarbúa fyrir útfjólubláum geislum sólar. Hvert mólikúl af freoni getur eytt yfir 100.000 mólikúlum af óson.



Hvert á að skila?

Fara skal með kælitæki á gámasvæðið við Réttahvamm 2 á Akureyri eða á gámasvæðið við Sandskeið Dalvíkurbyggð. 

Á gámasvæðunum eru sérstakir gámar fyrir kælitæki.  Flokkun Eyjafjörður ehf. hefur samið við Kælismiðjuna Frost ehf. um að fjarlægja vökvann af tækjunum áður en þau fara til endurvinnslu með brotamálmum.


 

Til baka

Auglýsingar

Flokkun Úrgangs
Lög og reglur
Áhugaverðir tenglar
Molta
Fenur
Endurvinnslukortid

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning