Flokkun Eyjafjörður ehf

Úrgangsstýring

Fréttir

Urðunarstaðurinn á Glerárdal lokar

Frá og með 1. mars 2011 verður urðunarstaðurinn á Glerárdal lokaður og allri úrgangsmóttöku þar hætt. Eftir þann tíma skal allur úrgangur sem þarf að urða fluttur til urðunar í Stekkjarvík í Austur-Húnavatnssýslu.

Nánari upplýsingar um fyrirkomulag, flokkun og flutning úrgangsins fást á skrifstofu Flokkunar í síma 462 4035 og einnig hjá hverju sveitarfélagi fyrir sig. 

Timburmóttaka Flokkunar mun á sama tíma flytjast í Ægisnes 1 á Akureyri (hjá Hringrás) og þar verður tekið á móti timbur- og garðaúrgangi. Vigtun farma skal fara fram á hafnarvoginni á Akureyrarhöfn eða hjá Steypustöð Akureyrar ehf., Sjafnarnesi 2-4 á Akureyri. Einstaklingum er bent á að losa framangreindan úrgang á gámasvæðum.



Auglýsingar

Flokkun Úrgangs
Lög og reglur
Áhugaverðir tenglar
Molta
Fenur
Endurvinnslukortid

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning