Stjórn Flokkunar heimsækir Stekkjarvík
Miðvikudaginn 6. október sl. lagði stjórn
Flokkunar Eykjafjörður ehf. land undir fót og fór til Stekkjarvíkur, í landi Sölvabakka í Refasveit, í samfloti við
verkefnistjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga á sviði úrgangsmála. Tilgangur ferðarinnar var að skoða framkvæmdir við
nýjan urðunarstað Norðurár bs. þar sem fyrirhugað er að urða úrgang Eyfirðinga a.m.k næstu 10 árin.
Framkvæmdum miðar vel og er áætlað að urðun geti hafist um næstu áramót. Búið er að
grafa út um 95 % af 390 þús. m3
urðunarhólfi sem er um 25 % af heildar urðunarrými
í Stekkjarvík. Framkvæmdir eru einnig hafnar við þjónustuhús og vatnsveitu. Aðstæður í Stekkjarvík eru
mjög hentugar fyrir urðunarstað og mun urðunarstaðurinn uppfylla allar ströngustu kröfur með tilliti til mengunarvarna og lágmörkun
umhverfisáhrifa. Heimilt er að urða 21.000 tonn á ári í Stekkjarvík. Miðað við áætlanir um úrgangsmagn mun
urðunarstaðurinn geta tekið við úrgangi frá Eyjafirði, Skagafirði og Austur Húnavatnssýslu í a.m.k. 30 ár. Hugsanlegt
er að urðunarstaðurinn í Stekkjarvík muni jafnvel þjóna enn stærra svæði.










