Flokkun Eyjafjörður ehf

Úrgangsstýring

Fréttir

Raftækjaúrgangur til endurvinnslu - það þarf ekki að vera flókið að flokka raftækjaúrgang

Samkvæmt könnun hér á síðunni okkar kom fram að mörgum finnst flókið að flokka raftækjaúrgang til endurvinnslu. Við hjá Flokkun teljum að svo þurfi ekki að vera þar sem lögin um raf- og rafeindatækjaúrgang ná yfir öll helstu raftæki sem almennt eru notuð á heimilum og vinnustöðum.

Lögin skipta úrganginum niður í 10 flokka og hér eru dæmi um hvern flokk:

1. Stór heimilistæki: ísskápar, frystar, þvottavélar, eldavélar, loftræstikerfi o.fl.

2. Lítil heimilistæki: ryksugur, straujárn, brauðristar, hárblásarar o.fl.

3. Upplýsingatækni og fjarskiptabúnaður: tölvur, prentarar, ljósritunarvélar, símar, vasareiknar o.fl.

4. Mynda- og hljóðbúnaður: sjónvörp, útvörp, myndbandstæki, upptökuvélar, magnarar o.fl.

5. Ljósabúnaður: ljósastæði, flúorljósrör, perur, sparperur o.fl.

6. Raf- og rafeindatæki (nema stór föst iðnaðartæki): borvélar, sagir, saumavélar, garðsláttuvélar o.fl.

7. Leikföng og tómstunda-, íþrótta og útivistarbúnaður: rafmagnsleiktæki, tölvuleikir, ýmsar smá tölvur, spilakassar o.fl.

8. Lækningatæki (nema ígræðsluvörur og vörur sem bera smit): Geislatæki, öndunarbúnaður, frystibúnaður o.fl.

9. Vöktunar- og eftirlitstæki: reykskynjarar, hitastillar, hitaskynjarar, mælitæki o.fl.

10. Sjálfsalar: nær allar tegundir af sjálfsölum.

Móttaka á þessum úrgangi er á gámasvæðunum á Akureyri og Dalvík og þar eru merkingar um í hvaða gáma hver hlutur fer.



Auglýsingar

Flokkun Úrgangs
Lög og reglur
Áhugaverðir tenglar
Molta
Fenur
Endurvinnslukortid

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning