Ný gjaldskrá Flokkunar 2010
Ný gjaldskrá fyrir móttöku og meðferð úrgangs hefur verið gefin út.
Nokkur hækkun er á gjaldskránni frá árinu 2009, fyrst og fremst vegna þess að móttökugjöld hafa ekki staðið undir öllum kostnaði við meðhöndlun og förgun sbr. 11.gr. laga nr 55/2003.
Helstu nýmæli í þessari gjaldskrá eru að lágmarksgjald fyrir einstaka losun miðast við 100 kg. og gjald fyrir losun á óflokkuðum úrgangi hefur hækkað hlutfallslega meira en aðrir liðir gjaldskrárinnar. Tilgangur með lágmarksgjaldi er að hvetja rekstraraðila til að skipulegja losun og fækka þannig ferðum á urðunarstaðinn. Nokkuð mikið hefur verið um losanir undir 100 kg. og töluvert álag af umferð á urðunarstaðnum af þeim sökum. Þetta skapar oft óþægindi og jafnvel slysahættu. Hækkun gjaldskrár fyrir losun á óflokkuðum úrgangi (þ.e úrgangi sem inniheldur endurvinnaleg efni) er fyrst og fremst ætlað að hvetja til aukinnar flokkunar en einnig að standa undir kostnaði sem hlýst af þvi að flokka þennan úrgang og koma í réttan farveg.










