Flokkun Eyjafjörður ehf

Úrgangsstýring

Fréttir

Jarðgerðin ársgömul

Fyrsti farmur af sláturúrgangi frá Norðlenska ehf. var tekin til vinnslu í jarðgerðarstöð Moltu ehf. að morgni 16. júní 2009. Frá þeim tíma hefur stöðin verið óslitið í vinnslu.  Á þessu fyrsta starfsári Moltu ehf. voru jarðgerð 4.900 tonn af úrgangi, sem skiptist nánast hnífjafnt milli slátur-, fisk- og heimilsúrgangs annarsvegar og stoðefna hinsvegar. Stoðefnin eru fyrst og fremst timburkurl og kurlaður trjágróður en einnig gras, hrossatað og pappír. Moltan sem framleidd hefur verið á þessu tímabili hefur verið nýtt til landmótunar og frágangs á urðunarstað Flokkunar á Glerárdal og til uppgræðslu á lóð Moltu. Fyrirhugaðar eru tilraunir með notkun moltu til uppgræðslu á afmörkuðu svæði. Unnið er að þvi að fá tilskilin leyfi til nýtingar á moltunni skv. "reglugerð um nýtingu á slátur- og dýraleyfum" 

Sjá nánar um Moltu ehf. á www.molta.is


Auglýsingar

Flokkun Úrgangs
Lög og reglur
Áhugaverðir tenglar
Molta
Fenur
Endurvinnslukortid

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning