Græna tunnan á hvert heimili í Arnarneshreppi
föstudagur 17.apríl 2009
Í gær
undirritaði Arnarneshreppur samning við Íslenska Gámafélagið varðandi "Grænu tunnuna" fyrir öll heimili í Arnarneshreppi. Þetta felur
í sér að íbúar sveitarfélagsins fá Grænu tunnuna til viðbótar þeirri tunnu sem fyrir er. Græna tunnan er fyrir
endurvinnanlegt sorp eins og bylgjupappa, sléttan pappa, fernur, plast, minni málmhluti, dagblöð/tímarit o.fl. Markmið verkefnissins er að minnka magn þess
úrgangs sem fer til urðunar um allt að 40%. Með þessum aðgerðum verða íbúar sveitarfélagisins með beinum hætti
þátttakendur í að gera Arnarneshrepp umhverfisvænna sveitarfélag.










