Flokkun raftækjaúrgangs
mánudagur 22.mars 2010
Eftir nokkuð langan meðgöngutíma er nú komin góð aðstaða til flokkunar raf- og rafeindatækjaúrgangs á gámasvæðunum á Akureyri og Dalvík. Þessu ber að fagna og hvetur Flokkun Eyjafjörður íbúa á svæðinu til að huga að þessu þegar farga þarf slíkum úrgangi. Nánari upplýsingar má finna undir hnappnum "Flokkun úrgangs" hér til hægri á síðunni.










