Flokkun Eyjafjörður ehf

Úrgangsstýring

Fréttir

Áherslur Sambands íslenskra sveitarfélaga í úrgangsmálum

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur gefið út bækling um áherslur sambandsins í úrgangsmálum. Efni bæklingsins er unnið í samvinnu við Verkefnisstjórn Samanbands íslenskra sveitarfélaga um hagsmunagæslu í úrgangsmálum, sem hefur starfað frá ársbyrjun 2008.

„Verkefnisstjórn er ætlað móta tillögur um leiðir til að efla hagsmunagæslu sveitarfélaga og fyrirtækja þeirra í úrgangsmálum og vera ráðgefandi fyrir stjórn og starfsemi sambandsins í úrgangsmálum, málefnum Úrvinnslusjóðs og skilakerfa úrgangsefna."   

Eitt af fyrstu viðfangsefnum verkefnisstjórnarinnar var að setja saman og gefa út efni um  áherslur sambandsins í úrgangsmálum.  Framangreindar áherslur hafa verið til umfjöllunar á öllum fundum verkefnistjórnarinnar frá upphafi, þar til þær voru samþykktar af stjórn Sambandsins í upphafi þessa árs.

Bæklinginn má nálgast hér.



Auglýsingar

Flokkun Úrgangs
Lög og reglur
Áhugaverðir tenglar
Molta
Fenur
Endurvinnslukortid

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning