Flokkun Eyjafjörður ehf

Úrgangsstýring

Fréttir

"Tökum vel á móti sumrinu"

Akureyrarbær hefur hvatt íbúa til að taka höndum saman við að hreinsa til  í bænum eftir veturinn og taka á móti sumrinu með bros á vör. Eitt af mikilvægum vorverkum er að klippa tré og runna og raka saman lauf sem hugsanlega varð eftir í haust, einnig er fyrsti lóðasláttur á næstu grösum eða honum nýlokið. Til að auðvelda íbúum að losna við garðaúrganginn hefur Akureyrarbær komið fyrir gámum á eftirtöldum stöðum: við Kaupang, Hagkaup, Hrísalund, í Aðalstræti við Minjasafnið, Bugðusíðu við leiksvæði og við Verslunarmiðstöðina Sunnuhlíð.Einnig er tekið við garðaúrgangi á gámasvæðinu við Réttarhvamm.

 Þessir gámar eru aðeins ætlaðir fyrir garðaúrgang skv. framangreindu. Garðaúrgangurinn verður tættur og notaður sem stoðefni í jarðgerð. Vinsamlega losið því plastpoka og komið þeim til endurvinnslu. Plast jarðgerist ekki en getur hinsvegar fokið við tætingu eða í jarðgerðinni og valdið mengun. Aðrir aðskotahlutir í garðaúrgangi geta líka valdið stór tjóni á tækjabúnaði.

Tökum höndum saman skilum náttúrunni aftur því sem henni tilheyrir. Vöndum flokkun og meðferð jarðgeranlegs úrgangs.  



Auglýsingar

Flokkun Úrgangs
Lög og reglur
Áhugaverðir tenglar
Molta
Fenur
Endurvinnslukortid

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning